Samþykktir
Samþykktir fyrir St. Georgsgildið í Hafnarfirði (febrúar 2009)
1. grein: Nafn og heimili
Félagið heitið St. Georgsgildið í Hafnarfirði og er grundvöllur þess fólginn í skátalögunum og skátaheitinu.
Lögheimili þess er í Hafnarfirði. Félagar þess nefnast gildisskátar.
St. Georgsgildið í Hafnarfirði er aðili að Landsgildinu, sem er Landssamband St. Georgsgilda á Íslandi.
2. grein: Markmið
Markmið St. Georgsgildisins í Hafnarfirði eru:
a) að reyna að lifa lífinu í samræmi við hugsjónir skátahreyfingarinnar
b) að flytja hinn asnna skátaanda inn í samfélagið, sem við lifum og störfum í
c) að veita skátastarfinu stuðning, að útbreiða skátahugsjónina, að stuðla að varðveislu
skátaminja og vera tengiliður milli skátahreyfingarinnar og eldri skáta og annarra velunnar hennar.
3. grein: Hlutleysi í stjórnmálum og trúmálum
St. Georgsgildið í Hafnarfirði tekur ekki afstöðu í stjórnmálum eða trúmálum og leggur áherslu á umburðarlyndi og víðsýni gagnvart skoðunum annarra.
4. grein: Gildisheitið
Gildisheitið er svohljóðandi:
„Ég lofa að lifa lífi mínu í samræmi við hugsjónir skátahreyfingarinnar og markmið St. Georgsgilda“.
5. grein: Félagar
Gildisskátar, fullgildir félagar í St. Georgsgildinu í Hafnarfirði, geta þeir orðið sem náð hafa 18 ára aldri, hafa verið skátar eða hafa áhuga á starfi skátahreyfingarinnar, hafa hlotið samþykki stjórnar, hafa unnið gildisheitið og síðan ritað nöfn sín í þar til gerða bók og staðfest þannig inngöngu sína í gildið.
6. grein: Skátagildi
Heimilt er hópi félaga, í samráði við stjórn gildisins hverju sinni, að mynda hópa eða sveitir til lengri eða skemmri tíma um ýmis áhugamál sín eða skátatengsl. Slíkir hópar eða sveitir skulu nefnd skátagildi.
7. grein: Stjórn
Stjórn gildisins skal skipuð fimm mönnum, körlum og konum.
Embætti í stjórn eru: Gildismeistari, varagildismeistari, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.
Gildismeistari skal kosinn sérkosningu til eins árs í senn.
Varagildismeistara, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda skal kjósa hvern fyrir sig til tveggja ára í senn, tvo og tvo sitthvort árið. Varagildismeistara og ritara annað árið, gjaldkera og meðstjórnanda hitt árið.
Kjósa skal tvo menn í varastjórn og tvo endurskoðendur til eins árs í senn.
Kjósa skal þrjá menn í allar fastanefndir sem eru ferðanefnd, friðarljóssnefnd, laganefnd, leiðisnefnd /v/Eiríks Jóhannessonar, minjanefnd, skálanefnd, skemmtinefnd, skeytaútkeyrslunefnd og uppstillingarnefnd. Nefndirnar ákveði sér formann.
Gjaldkeri skal á aðalfundi gera tillögu um árgjald næsta árs.
8. grein: Aðalfundur
Aðalfundur skal haldinn í byrjun febrúar ár hvert. Hann skal boðaður með minnst viku fyrirvara bréflega eða í Gildispóstinum, fréttabréfi St. Georgsgildisins í Hafnarfirði. Aðalfundur er löglegur, ef löglega er til hans boðað.
Séu lagabreytingar fyrirhugaðar, skulu þær kynntar í fundarboðið. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn eigi síðar en 10. Janúar.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
a) Skýrsla stjórnar og nefndarformanna
b) Skýrsla gjaldkera
c) Lagabreytingar, sé þeirra getið í fundarboði
d) Ákveðið árgjald næsta árs
e) Kosning gildismeistara
f) Kosning tveggja manna í stjórn
g) Kosning tveggja manna í varastjón
h) Kosning tveggja endurskoðenda
i) Kosning formanna fastanefnda
j) Önnur mál
9. grein: Reikningsár
Reikningsárið er frá 1. janúar til 31. desember
10. grein: Gildispósturinn
St. Georgsgildið í Hafnarfirði gefur út fréttablaðið Gildispóstinn. Gildisstjórn skipar ritsjóra blaðsins. Gildispósturinn kemur út eftir efnum og ástæðum hverju sinni.
11. grein: Um virka skátaforingja
Virka skátaforingja má ekki velja í embætti í gildinu nema að fengnu leyfi þeirra.
12. grein: um félagsstarfsemina almennt
Æskilegt er að fundir séu haldnir mánaðarlega frá september til maí og að farin sé sumarferð eða haustferð.
13. grein: Ef gildið hættir störfum
Ef St. Georgsgildið í Hafnarfirði hættir störfum af einhverjum orsökum, skulu eignir þess renna í sérstakan sjóð og skulu vextirnir af honum notaðir til styrktar skátastarfi í Hafnarfirði.
Stjórn sjóðsins skipa: Einn maður tilnefndur af Landsgildinu, einn maður tilnefndur af bæjarstjóranum í Hafnarfirði og einn maður tilefndnru af stjórn Hraunbúa og er hann formaður sjóðsstjórnarinnar. Tilnefning gildir til tveggja ára í senn.
Taki St. Georgsgildi til starfa að nýju í Hafnarfirði, þá skal sjóðurinn vera eign þess.
14. grein: Um lagabreytingar
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi og þarf a.m.k. 2/3 fundarmanna á aðalfundi að greiða lagabreytingum atkvæði, til þess að þær teljst löglegar.
15. grein: Um gildistöku laganna
Lög þessi tóku gildi mánudaginn 9. maí 1994, með breytingu á aðalfundi 15. júní 2001 og síðar á aðalfundi 10. apríl 2007, breytt á aðalfundi 4. febrúar 2009.
