Main menu:

RSS Af Hraunbuar.is

Sæúlfurinn – Helena og Markús koma í heimsókn

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 10. January 2012 | Almennt

Fyrsti fundur ársins verður í Tónkvísl, Tónlistarskólanum, í íþróttahúsi Gamla Lækjarskóla kl. 20 fimmtudaginn 12. janúar.

Helena Línudóttir Kristbjörnsdóttir og Markús Elvar Pétursson maður hennar koma og segja frá dvöl sinni á skútunni Sæúlfinum, en þau fóru í stóra siglingu ásamt fjölskyldunni árið 2009 og 2010. Þau fyrirhuga fleiri ferðalög og verður fróðlegt að heyra í þeim.

Helena er Hraunbúi. Nánari upplýsingar er að finna á síðunni þeirra www.siglari.com

Jólafundurinn 4. desember

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 29. November 2011 | Almennt

Gleðilega aðventu gildisfélagar.

Jólafundurinn verður haldinn í Skátalundi á sunnudag kl. 14.00. Jólasöngvar, jólasaga, jólaguðspjallið, jólakökur, jólasveinninn, jólabrennan og svo jólaskapið.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og ekki gleyma að koma með meðlætið ykkar góða á hlaðborðið. Heitt súkkulaði verður á könnunni.

Sendi ykkur einnig fréttabréf NBSR Nordic Baltic Sub-Region með fréttum frá Norðurlöndunum og af gildismótinu sem verður í Litháen 13.-17. júní á næsta ári.

Hafið það sem best á aðventunni og um jólin.

Fyrsti fundur á nýju ári verður fimmtudaginn 12. janúar í Hraunbyrgi. Helena Línudóttir Kristbjörnsdóttir mun þar segja frá ferð sinni með fjölskylduna á skútu. En þau sigldu frá Íslandi og suður með strönd Evrópu. Meira um þetta í janúar.

Víkin

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 12. November 2011 | Almennt

13 manns mættu í dag í Víkina – sjóminjasafn og áttu þar góða stund í yndislegu veðri. Langflestir skoðuðu varðskipið Óðinn og einn hafði meira að segja verið messi um borð. Sjáumst hress á jólafundinum.

Nýr gildispóstur

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 10. November 2011 | Almennt

Nýr Gildispóstur er kominn á netið, fullur af efni.

Víkin-Sjóminjasafn í Reykjavík

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 8. November 2011 | Almennt

Næsti gildisfundur-ferð verður haldinn í Víkinni  Sjóminjasafninu í Reykjavík. http://www.sjominjasafn.is/forsida/

Mæting er í Víkinni Grandagarði 8 laugardaginn 12. nóvember kl. 13.15  http://www.sjominjasafn.is/um-safnid/stadsetning/ Fyrir þá sem vantar far eða vilja gjarnan fljóta með þá ætlum við að hittast við Hafnarfjarðar og safna í bíla. Það verður farið frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 13.00.

Víkin er ungt safn í örum vexti og er sýningarými þess núna um 1200 fermetra innandyra. Þar eru fimm sýningar í jafn mörgum sölum sem m.a. rekja þróun fiskveiða og strandmenningar Íslendinga í aldanna rás. Hlutverk safnsins er að safna og miðla upplýsingum um minjar tengdar sjó og sjómennsku, einkum þeim sem gildi hafa fyrir sögu Reykjavíkur.
Nú eru tveir aðalinngangar inn í safnið, Grandagarðsmegin og síðan hafnarmegin.
Þá er varðskipið Óðinn hluti af safninu og liggur við sérstaka safnbryggju. Gestum safnsins gefst kostur á að skoða þetta merka skip. Óðinn tók þátt í öllum þorskastríðunum á síðustu öld og fór að auki í fjölmarga björgunarleiðangra. Víkin-Sjóminjasafnið í Reykjavík hefur að geyma þrjár fastasýningar sem eru allar mjög skemmtilegar og fræðandi. Ævintýraheimur Óðins, þróun Reykjavíkurhafnar og breytingin frá árabátum til togara.

Verð á mann kr. 700.

Síðan ætlum við að fá okkur kaffi í Bryggja – kaffihús sem er í miðju safninu að lokinni skoðunarferð. Mætum hress og kát á eigin bílum. Fyrir þá sem vantar far eða vilja gjarnan fljóta með þá ætlum við að hittast við Hafnarfjarðakirkju  og safna í bíla. Það verður farið frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 13.00.

Haustferðinni frestað

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 13. October 2011 | Almennt

Vegna þátttökuleysis hefur haustferðinni verið frestað fram á vor. Ferðanefnd.

Vináttudagurinn – Árbæjarsafn

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 11. October 2011 | Almennt

Vináttudagurinn verður 23. október í umsjá Straums.

Kl.  13:50  Safnast saman við inngang Árbæjarsafns
Kl.  14:00   Skoðunarferð um Árbæjarsafn,  með leiðsögumanni. þar sem við munum skoða gamla bæinn, kirkjuna, gamla Lækjarbotaskálann og Tjöruhúsið, ef tíminn leyfir.
Kl.   15:15  Komið saman í Skátamiðstöðinni við Hraunbæ.  Kaffiveitingar og vináttudagsdagskrá með hefðbundnu sniði.

Áætlað að dagskrá verði lokið kl. 17.00

Þátttakendur sem koma í Árbæjarsafn greiða Kr. 600 í aðgangseyri, (örorku- og ellilífeyrisþegar greiða ekki)

Gjald fyrir kaffiveitingar kr. 1.500

Vinsamlegast tilkynnið  þátttöku til Kristjönu 6998191 eða Eddu 8941544 eigi síðar en 18. október.

 

Haustferðin- Óvissuferð austur fyrir fjall

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 11. October 2011 | Almennt

Haustferðin verður farin laugardaginn 15. október ef næg þátttaka fæst. Lagt af stað frá Hraunbyrgi kl. 8.45 og áætlað að koma til baka kl. 17.00. Verð kr. 6.000, breytist ef fleiri en 20 fara með. Innifalið er rúta, hádegissnæðingur og síðdegiskaffi.

Nefndin

Ný skátadagskrá

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 11. October 2011 | Almennt

Ólafur Proppé mætir í Skátalund fimmtudaginn 13. október kl. 20 og kynnir nýtt námsefni til notkunar hjá Bandalagi íslenskra skáta. Efnið er þýtt og staðfært og notað vítt og breytt um heiminn í skátastarfinu. Mætum hress í Skátalund og heyrum í Ólafi. Kaffi og með því að hætti Jónu Bríetar og Kristjönu.

Fyrsti fundur vetrarins

Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir ritaði þann 23. September 2011 | Almennt

Góð mæting var á fyrsta fund gildisins. 39 félagar mættir auk fyrirlesarans Björns Oddssonar. Var góður rómur gerður að erindi hans  og mátti greinilega sjá að þetta efni á hug hans allan. Veitingarnar voru ekki af verri endanum, kleinur og pönnukökur að hætti Jónu Bríetar. Sjáumst svo hress á næsta fundi og í haustferðinni sem verður 15. október.